Hvítasunnuhelgin

17/05/2013

 
Picture
Um hvítasunnuna verður lokað á sjálfan hvítasunnudaginn en annars opið frá kl. 11-15 eins og verið hefur frá 15. apríl.


 
 
Picture
Ferðamenn hafa verið á ferðinni í allan vetur í Dölum og er ferðaþjónustuaðilum sem eru starfandi allt árið um kring að fjölga í Dölum. Þessi mynd var tekin 12. maí þegar þýskir ferðamenn redduðu sér með vatni sem ætlað er fyrir smábátahöfnina. 

 
 
Picture
1. maí kaffi var í Leifsbúð í boði SDS eða stéttafélag Dala- og Snæfellssýslu. Var boðið upp á ýmis skemmtiatriði. Kristín G. Ólafsdóttir bauð gesti velkomna, Signý Jóhannesdóttir ávarpaði gesti,  Vorboðinn söng undir stjórn Þorkels Cýrussonar og síðan skemmti okkar landskunna eftirherma Jóhannes Kristjánsson sem aldeilis kitlaði hláturtaugar viðstaddra. Aldrei hefur verið eins góð mæting en yfir 100 manns mættu að þessu sinni í blíðskaparveðri á frídegi verkalýðsins.

 

Opnun Leifsbúðar

16/04/2013

 
Picture
Nú er búið að opna Leifsbúð og verður opið frá kl. 11 - 15 alla daga til 1. júní að undanskildum rauðu dögunum. En það er þá uppstigningadagur og hvítasunnudagur. En opið verður á sumardaginn fyrsta í tilefni Jörfagleði Dalamanna.
En fram í júní erum við með kaffi og kaffiveitingar ásamt súpu dagsins.
Frá 1. júní verður opið frá kl. 10 - 18 alla daga en ekki á kvöldin eins og áður.
Ef um hópa eða annað er að ræða, vinsamlegast hafið samband við okkur
.

 
 
Picture
Halli Reynis heldur tónleika í Leifsbúð sunnudaginn 31. mars, páskadag kl. 21.00.
Halli okkar var að gefa út disk núna á dögunum og ætlar að koma með nýjustu lögin og leyfa okkur að heyra.
Íris Guðbjartsdóttir verður gestur á tónleikunum. 
Mætum öll og eigum saman góða stund.
Sjá líka undir linknum "Viðburðir".

 
 
Picture
Dalir:

Þurranes farm accommodation - Guests bring their own food, but it´s possible to make a request for meals in advance.

Tel: +354 434 1556/ +354 847 8660

E-mail: thurranes@centrum.is

Website: www.thurranes.is



 
 
Picture
Jólahlaðborð Leifsbúðar verður Laugardaginn 
1. desember.


Að venju verður fullhlaðið borð af ýmsu góðgæti 
og gott andrúmsloft í fallega gamla kaupfélaginu. 
Það verður boðið upp á skemmtun og sumir eru bara
líka alltaf skemmtilegir ;)

Hlökkum til að sjá sem flesta !

                                                           Sama verð og í fyrra, aðeins 6.900 kr.
                                                           Ath. hópafsláttur fyrir 15 og fleiri.

                                                           Starfsfólk Leifsbúðar.
                                                           
Borðapantanir: 8696463/7726436/ leifsbud@dalir.is 
 

                                Athugið! Matseðill undir linknum: Viðburðir 


 
 
Picture
Nú er komið að einni líflegustu helgi Dalamanna n.k. helgi 26 - 28 október.
Leifsbúð verður opið  laugardaginn 27. október frá kl. 11 - 17.
Í hádeginu verða tveir réttir dagsins og tvær súpur í boði, ásamt okkar yndislega kaffi og meðlæti.


Myndir hér til hliðar er einmitt frá fundi sauðfjárbænda.



 

Sumarlok

24/10/2012

 
Picture
Nú fer að líða að sumarlokun og frá og með deginum í dag lokum við kl. 18.00 alla dag til 1. september. En þann 1. september ætlum við að gera okkur glaðan dag og verður það auglýst um leið og allt er orðið klárt ;)
Um leið vil ég þakka öllum sem hafa átt leið hingað í Leifsbúð í sumar og sérstaklega vil ég þakka honum Patrik "frænda" á Hrútsstöðum sem kom og eldaði hjá okkur á bæjarhátíðinni "Heim í Búðardal" Hann kom nokkrum sinnum og setti saman ljúfa rétti sem gestir okkar kunnu vel að meta.
 Takk kærlega Patrik!

 
 
 

Dalir, Dalasýsla, Búðardalur